Rafræn vöktun

Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla á starfsstöðum First Water hf.

Ábyrgðaraðili vöktuninnar: First Water hf. Urðarhvarf 8b 204 Kópavogur. Símanúmer: 518 8000 netfang: info@firstwater.is

Tilgangur vöktuninnar: Í öryggis- og eignarvörsluskyni.

Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna First Water hf. af öryggis- og eignarvörslu, sbr. 6. tl. 9. gr. laga nr. 90/2018 og f-lið 1 mgr. 6. gr. pvrg.

Tegundir pers´ónuupplýsinga: Myndefni af vöktuðum svæðum þar sem sjá má einstaklinga og athafnir þeirra.

Viðtakendur: Starfsmenn félagsins með þar til gerða heimild hafa aðgang að myndefninu. Myndefni um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingarfélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annara slíkra laganauðsynja.

Réttindi einstaklinga: Einstaklingur á rétt á að skoða myndefni þar sem hann sést. Einnig eiga þeir rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti eru réttindi einstaklinga samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.

Hlaða niður þessu skjali